Stromboli, alveg jafn gott og það er gaman að segja stromboli

Stromboli er pizzadeig, flatt út ferkantað og fyllt með kjöti og osti og svo er því rúllað upp og bakað í ofni.  Það er engin sósa inn í rúllunni heldur er hún borin fram með þessu í skál "on the side"  Rúllan er skorin í sneiðar og sneiðinni svo dýft í sósuna.

Það sem mér finnst best við mitt stromboli er 5 kornablandan sem ég strái ofan á rúlluna. Hér kemur hugmynd að Stromboli eins og ég gerði það síðast og það smakkaðist rosalega vel.

stromboli

Stromboli

  • Pizzadeig
  • Grænpipars-salami (fæst í ostabúðinni) eða annað gott pepperoni
  • Steikt nautahakk (steikt með hvítlauk, smátt skornum lauk og pizzakryddi)
  • Skinka
  • Ferskur mossarella
  • Einhver góður brauðostur
  • Brie

Álegginu er raðað á pizzadeigið eins og sýnt er á myndinni hér fyrir neðan.

stromboli

Svo er því rúllað upp, skerið rendur í rúlluna og penslið hana með eggjahvítu.  Ef þið viljið stráið þá smá fimmkornablöndu eða sesamfræjum ofan á rúlluna. 

stromboli

Bakið í ofni við 200°c þar til það er fullbakað, um 20 mínútur.

stromboli

 stromboli

Sósan:

  • Hakkaðir tómatar í dós eða tómatsósa í dós
  • Laukur
  • Hvítlaukur
  • Oregano
  • Salt og pipar
  • Smá sýróp
  • pínku balsamik edik

Laukur og hvítlaukur svitaður í olíu. Restin sett í pottinn. Allt soðið saman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alveg frábært að fylgjast með síðunni þinni. Bíð í ofvæni á hverjum degi eftir nýrri færslu.

Lýst vel á stromboli, mætti hugsa sér það sem gestarétt !!

Hrafnhildur Árnadóttir (IP-tala skráð) 21.9.2011 kl. 22:39

2 Smámynd: Soffía Gísladóttir

:) Takk. Ó já.  Það á engin gestur eftir að vera svikinn af Stromboli...nema hann sé grænmetisæta :P

Kv, Soffía

Soffía Gísladóttir, 23.9.2011 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband