Kúrbítsblóm í einhverskonar pönnukökudeigi

Ég var í B.C, Kanada, nú um daginn ţar sem uppskeran er í fullum blóma.  Ţađ er svo gaman ađ keyra um sveitina og koma viđ á sveitamörkuđunum sem eru stútfullir af brakandi fersku grćnmeti.

farmers market

farmers market

Mér finnst svo gaman ađ versla mat, sérstaklega svona fallegan mat...

grćnmeti

Ţađ er mikiđ um kúrbít í B.C.  Kúrbítsblómin eru einnig mjög góđ í eldamennskuna.  Ţađ er virkilega gott ađ velta ţeim upp úr pönnukökudeigi og steikja á pönnu.

blóm

Ég keypti mér kúrbítsfrć í vor og setti í nćgilega stórann pott.  Ekki lét neinn kúrbítur sjá sig en blómin dafna vel.  Pottinn er ég međ út í glugga ţar sem hann fćr nćga sól.  Ég mćli alveg međ ţví ađ prófa kúrbítsfrćin til ţess eins ađ fá blómin.

kúrbítsblóm

kúrbítsblóm

Kúrbítsblóm í einhverskonar pönnukökudeigi

Deigiđ ţarf ekki ađ vera svo nákvćmt, bara ađ ţykktin sé svipuđ og pönnukökudeig.

  • 1 egg
  • 1 tsk salt
  • 1 dl mjólk
  • Hveiti eftir ţörfum
  • 1/2 tsk lyftiduft
  • 1 msk matarolía eđa smá smjör

Veltiđ blómunum upp úr deiginu og steikiđ á pönnu ţar til deigiđ er fulleldađ. (eins og pönnukökur)

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband