Mangó Karrý kjúklingur

Þennan rétt þekkja nú flestir en ég var beðin um að setja hann hér inn.  Hlutföllin eru nú ekki nojuð frekar en fyrri daginn.  En þetta gerði ég:

 Mangó Karrý kjúklingur

  • 2 kjúklingabringur, skornar í bita
  • 400 dl rjómi
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 4 kúffullar msk mango chutney
  • 3..4..5... tsk karrí, alveg eftir smekk!
  • 2 tsk eða svo af túrmerik
  • Salt og pipar
  • Olía eða smjör til steikingar

Bringur skornar í bita, steiktar með smjöri eða olíu ásamt kjúkling og karrí, túrmerik, hvítlauk, salti og pipar.  Mangó chutney og rjómi settur útí og látið malla.    Túrmerik er ekki nauðsynlegt, ég er bara með túrmerik æði.  Svo ef þið viljið þykkja sósuna þá má alltaf setja smá af sósujafnara, mér finnst þó betra að hafa hana meira fljótandi.

Borið fram með naan brauði.

mangó kjúklingur

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband