Miðjarðarhafssamloka

Það má láta hugann reika til Miðjarðarhafsins þegar maður dúllar sér við að búa til þessa samloku.  

 

Miðjarðarhafssamloka

  • 3 msk smjör eða olía (og smá fyrir paprikuna)
  • 1 laukur, skorinn í hringi
  • Salt og pipar
  • Smá sykur
  • 1 paprika
  • Hummus, 3-4 msk
  • Gott gróft brauð
  • 1 blað af Romaine salati eða annað gott salat
  • Nokkrar sneiðar agúrka
  • Fetaostur, án eða í kryddolíu.

 Hitið olíu eða smjör á pönnu og brúnið laukinn, saltið, piprið og sykrið og látið malla þar til laukurinn verður mjúkur.

Takið frá 5-8 hringi til að setja á samlokuna, geymið restina.

Það gerið þið með því að skera papriku gróft niður í báta, setjið í eldfast mót, dreypið yfir ólífuolíu, salti og pipar og setjið í ofninn á grill þar til skinnið á paprikunni verður pínku svart. Takið hana úr ofni, setjið í skál og lokið með plastfilmu í korter.  Þannig losnar hýðið auðeldlega frá þegar hún kólnar.

Setjið hummus á brauðsneiðarnar, setjið svo salat, tómata, lauk, gúrku og grilluðu paprikuna á sneiðina.  Dreifið fetaostinum ofan á og lokið með hinni sneiðinni.

 

Það er hægt að gera einfaldan hummus með að setja kjúklingabaunir, ólífuolíu, slatta af salt, smá hvítlauk og pipar í blender og mauka.


IMG 7056

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband