Koofteh, persneskur réttur

Það var alveg komin tími á að prófa að elda eitthvað nýtt.  Ég er búin að vera að hjakkast í sama farinu undafarið, alltaf að elda það sama og ekkert spennandi.

Þegar ég fékk nýjasta Gestgjafann í dag ákvað ég að elda eitthvað upp úr honum.  Fyrir valinu varð Koofteh, persenskur réttur.  Ég átti ekki allt sem til var samkvæmt þeirri uppskrift, en google-aði fleiri sambærilegar uppskriftir og svona endaði þetta hjá mér.  Súper bragðgott, alveg bráðnaði upp í manni!  Mynta og esdragon er góð samsetning.

Koofteh (fyrir þrjá)

  • 1 bolli hálfsoðin hrísgrjón
  • 500 g nautahakk
  • 1 tsk túrmerik
  • Nokkur lauf fersk mynta
  • Salt 
  • Pipar
  • 1 tsk þurrkað esdragon
  • 2 egg

Setjið allt í matvinnsluvél og maukið.  Búið til bollur sem eru á stærð við golfkúlu.

Sósan

  • 1 laukur
  • 1 rif hvítlaukur
  • 1 tsk túrmerik
  • 1 tsk esdragon
  • 1 tsk papriku krydd
  • Nokkur fersk myntulauf
  • 2 msk tómat púrre (1 lítil dós)
  • 1 tsk sítrónusafi
  • 2 tsk sykur
  • 2 tsk appelsínusafi
  • Olía
  • 1 L vatn

 

Steikið lauk í olíu, bætið við  öllu öðru nema vatni og appelsínusafa og hrærið saman. Bætið við vatni og látið sjóða.  Setjið bollurnar út í, eina í einu.  Lækkið hita og látið malla undir loki í 1 klst.  Bætið við appelsínusafanum í lokin.

Borið fram með fersku salati og jógurt Raita.

  • 2 dl AB mjólk
  • hálf agúrka, gróft skorin
  • hálfur rauðlaukur (rokkar) fínt skorinn
  • 2 tsk túrmerik
  • ca 2-3 tsk Maldon salt
  • Sett í kæli í svona hálftíma.
www.soffia.net



 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband